Search
Close this search box.

Þurfa allir að eiga bíl? En tvo?

Deildu 

Á Íslandi er bílaeign ein sú mesta í heimi, og nú eru yfir 820 bílar í landinu á hverja 1000 íbúa.  Það þýðir að fimm manna fjölskylda á að meðaltali fjóra bíla. Til samanburðar eru innan við 500 bílar á 1000 íbúa í Danmörku og Svíþjóð.  Norðmenn eiga rúmlega 500 bíla á 1000, og Finnar um 750.  Aðeins fjögur lönd eða ríki eiga fleiri bíla en við;  Bandaríkin, Nýja Sjáland,  Mónakó og San Marinó.  Fjöldi rafmagns- og tengiltvinnbíla fer vaxandi sem er jákvæð þróun.

Þessi mikla bílaeign kostar okkur sem samfélag gríðarlega mikla fjármuni. Flestir ganga fyrir jarðefnaeldsneyti og mengun frá bílum er mikil, bæði í formi útblásturs og vegna slits á dekkjum og götum.  Í skipulagi stærri sveitarfélaga þarf að gera ráð fyrir um þremur bílastæðum fyrir hvern bíl í umferð, sem kallar á gríðarlega landnotkun auk þess mikla beina kostnaðar sem af hlýst.  

Með orkuskiptum mun gjaldtaka af bílum líklega breytast úr því að vera fyrst og fremst bensín og olíugjöld eins og er í dag yfir í bein notkunargjöld sem þarf til að standa undir vega- og gatnagerð. 

Sveitarfélögin hafa ekki haft heimildir til að innheimta umhverfisgjöld, nema helst bílastæðagjöld, en hafa umtalsverðan kostnað af bílaeign íbúanna. Þau hafa heldur ekki fengið hlutdeild í bifreiðagjöldum eða kolefnisgjöldum. Heppilegast væri að hvati sveitarfélaganna til íbúanna væri í formi hvatningar til að menga minna. Sveitarfélög gætu tekið upp ívilnanir til þeirra sem eiga einn eða engan bíl eða skipulagt sig þannig að aðgengi fyrir gangandi og hjólandi væri jafngott og fyrir einkabíla.

Slíkar breytingar munu hafa í för með sér kostnað fyrir sveitarfélögin og við höfum því lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um hvort hægt sé að veita sveitarfélögunum heimild til innheimtu umhverfisgjalda og að ráðherra skili þinginu skýrslu þar um. Málið er flókið og því er afar mikilvægt að skoða það vel. Þar koma til að mynda inn atriði eins og hvernig á að tryggja að þeir sem þurfa bíla vegna sérstakra aðstæðna sinna verði ekki fyrir búsifjum, að tekið verði tillit til þeirra sem búa í dreifbýli og hafa ekki aðgang að almenningssamgöngum og svo mætti lengi telja. Að auki ber að líta til þess að álagning dreifist með réttlátum hætti og leggist ekki þyngst á þá sem minnst hafa. Aðalatriðið er að við skoðum með opnum huga hvernig við getum fært sveitarfélögunum þau tæki sem þau þurfa til að búa til jákvæða hvata fyrir íbúana. Þannig má taka skynsamlegar ákvarðanir í umhverfislegu tilliti.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson, þingmenn Vinstri grænna.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search