Tólf verða í framboði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem verður dagana 16. til 19. maí nk. Í forvalinu verður kosið í efstu fjögur sætin framboðslistum Vinstri grænna til Alþingis í Reykjavíkurkjördæmum Suður og Norður. Frambjóðendur bjóða sig því fram tiltekið sæti í öðru hvoru kjördæmanna.
Eftirfarandi framboð bárust:
Andrés Skúlason, verkefnastjóri, í 2. sæti.
Brynhildur Björnsdóttir, blaðamaður, bókarýnir og söngkona, í 4. sæti.
Daníel E. Arnarson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78, í 2. sæti.
Elva Hrönn Hjartardóttir, sérfræðingur hjá VR, í 2. sæti.
Eva Dögg Davíðsdóttir, doktorsnemi í umhverfis- og þróunarfræði, í 3.-4. sæti.
Guy Conan Stewart, kennari, í 4. sæti.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í 1. sæti.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, alþingismaður, í 2. sæti.
Orri Páll Jóhannsson, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra og varaþingmaður, í 2. sæti.
René Biasone, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, í 4. sæti.
Steinunn Þóra Árnadóttir, alþingismaður, í 2. sæti.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, í 1. sæti.
Nánari upplýsingar er að finna á: https://reykjavik.vg.is/