Search
Close this search box.

Tryggjum íþróttastarf fyrir fötluð börn

Deildu 

Aðeins 4% fatlaðra barna eru virk í starfi hjá íþróttahreyfingunni. Þeirri stöðu verður að breyta. Eldhugar innan íþróttahreyfingarinnar og samtaka foreldra fatlaðra barna hafa tekið málið föstum tökum í verkefninu „Allir með“, sem gengur út á að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn hjá almennum íþróttafélögum. Um er að ræða þriggja ára samstarfsverkefni Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands og Íþróttasambands fatlaðra sem styrkt er af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Hugmyndafræði „Allir með“ gengur út á að öll börn eigi að hafa möguleika á því að taka þátt í íþróttum í nærumhverfi sínu, í samræmi við óskir sínar og þarfir. Í því skyni heldur „Allir með“ úti hvatasjóði sem styrkir íþróttafélög til að auka inngildingu fatlaðs fólks í íþróttastarfi. Að fara í gegnum almennu íþróttafélögin er lykilatriði, því mestur árangur næst ef æfingar fara fram í samfélaginu þar sem börnin búa. Öll börn vilja tilheyra sama hópi og vinirnir, klæðast búningi síns liðs og æfa í sínu íþróttahúsi.Hugmyndafræði „Allir með“ gengur út á að

Dæmi um viðburð sem styrkur var af hvatasjóðnum eru Íslandsleikarnir í körfubolta og fótbolta sem fram fóru nýverið í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þar tókust 50 ungir íþróttamenn úr Haukum og Stjörnunni/Ösp á við gefandi áskoranir sem felast í að fara í fyrstu keppnisferðina, á fyrsta mótið og í fyrsta íþróttaferðalagið. Það er mikilvægt að öll börn eigi kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um þá leikni og þroska sem maður öðlast í góðu félagsstarfi og félagsskap. Á Akureyri tók svo hópur ófatlaðra barna úr Þór/KA á móti gestunum, blandaði sér í lið með þeim og spiluðu saman. Verkefnum undir hatti „Allir með“ fjölgar hratt og forsvarsmenn þess finna fyrir miklum áhuga hjá íþróttafélögum og sveitarfélögum.

Ég var sjálfur í íþróttum sem barn og unglingur og þótti nokkuð liðtækur í grindahlaupi (enda svo sem ekki margir um hituna í þeirri grein). Ég veit því frá fyrstu hendi hve þroskandi og gefandi það er að æfa og keppa með jafningjum sínum, fara í ferðir um landið, gista á dýnum í skólastofum og kynnast öðrum krökkum. Þess eigum við að sjá til að öll börn fái að njóta, líka fötluð börn. Íþróttir eru fyrir okkur öll.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search