Search
Close this search box.

Tryggjum staf­rænt að­gengi fyrir fatlað fólk

Deildu 

Ófatlað fólk áttar sig oft ekki á þeim hindrunum sem fatlað fólk stendur frammi fyrir dagsdaglega. Ég hef klárlega verið þar oftar en einu sinni. En ég vil trúa því að öll viljum við gera það sem í okkar valdi stendur til að jafna aðgengi fatlaðs fólks að samfélaginu. Ég vil sjá breytingar.

Engin mega sitja eftir í stafrænu byltingunni

Ein hindrunin er stafrænt aðgengi fatlaðs fólks. Stafrænt samfélag er í hraðri þróun, en í dag er hægt að nota rafræn auðkenni á ýmsum vefsvæðum hjá yfir 180 þjónustuveitendum á Íslandi. Þetta er afskaplega jákvæð þróun sem sparar tíma, peninga og einfaldar líf okkar flestra til muna. Stafræn þróun er aftur á móti stór áskorun fyrir margt fatlað fólk og einnig eldra fólk sem hafa ekki öll getað nýtt sér þessa þróun. Þetta þarf að laga, þannig að öll geti tekið þátt í þessum mikilvægu breytingum í samfélaginu og engin sitji eftir. Hér eru breytingar til hins betra hafnar.

Nýr umboðsmannagrunnur tryggir aðgengi fatlaðs fólks

Eitt af því sem ég lagði strax ríka áherslu á sem félags- og vinnumarkaðsráðherra var að opna dyr fatlaðs fólks að hinni stafrænu þróun. Í október síðastliðnum opnaði ráðuneyti mitt í samstarfi við Réttindagæslu fatlaðs fólk svokallaðan umboðsmannagrunn fyrir persónulega talsmenn sem lögum samkvæmt aðstoða fatlað fólk sem á því þarf að halda. Með umboðsmannagrunninum getur persónulegur talsmaður skráð sig inn með sínum eigin rafrænu auðkennum fyrir hönd hins fatlaða einstaklings og fær þannig aðgang að pósthólfi hjá Stafrænu Íslandi.

Með þessu móti er tryggt að þau sem ekki geta notfært sér rafræn auðkenni sjálf hafi aðgengi í gegnum persónulegan talsmann sinn. Þetta kerfi hefur enn fremur þann kost að hægt er að rekja hver hafði umboð, fyrir hvern og á hvaða tímabili. Umboðsmannagrunnurinn á því að tryggja öryggi fatlaðs fólks í stafrænum heimi sem og aðgengi að gögnum sem send eru.

Viljayfirlýsing fjögurra ráðherra og næstu skref

Til að tryggja áframhaldandi vinnu brautargengi í stjórnkerfinu undirrituðu fjórir ráðherrar viljayfirlýsingu rétt fyrir páska um þróun á lausnum á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk. Umboðsmannagrunnurinn er fyrsta skrefið í þessu samhengi. Með viljayfirlýsingunni hefst síðan næsti áfangi. Unnið verður stöðumat á stafrænu aðgengi og tillögur að frekari lausnum, meðal annars hvernig megi tengja umboðsmannagrunninn við aðrar stofnanir, banka og fyrirtæki, þannig að hægt verði að gera stafræna þjónustu aðgengilega og örugga fyrir fatlað fólk í gegnum persónulega talsmenn þess.

Ég mun halda áfram að leggja áherslu á bjartari stafræna framtíð fyrir fatlað fólk og aðra hópa sem eiga erfitt með að tileinka sér hana.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search