Search
Close this search box.

Varð­veisla Maríu Júlíu BA 36

Deildu 

Verndun og varðveislu sögulegra skipa er hluti af alþýðumenningu okkar. Eitt merkilegasta skip sem möguleiki er á að bjarga er fyrsta varðskip og hafrannsóknaskip Íslendinga, María Júlía, sem var smíðað árið 1950 og á sér merka sögu en hefur legið undanfarin ár í Ísafjarðarhöfn og má muna sinn fífil fegri. Byggðasafn Vestfjarða og Minjasafnið á Hnjóti keyptu skipið árið 2003 en þá átti að selja það til Suður-Afríku. Það naut varðveislu og stuðnings opinberra aðila fyrstu árin en hefur legið í svokallaðri öndunarvél í Ísafjarðarhöfn síðan 2014 og fer hver að verða síðastur að bjarga þessu menningarverðmæti frá glötun.

Viðhöldum verkþekkingu

Mikilvægt er að viðhalda verklegum hefðum sem snúa að smíði trébáta og skipa, ekki síður mikilvægt er að vernda sérstaklega skip og báta sem að hafa menningarlegt gildi og sterka samfélagslega tengingu innan ákveðinna svæða. Ég tel það vera mikilvægt að sýna sögu okkar og fórnfýsi fyrri kynslóða virðingu og gera skipið upp og fá því nýtt hlutverk í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila. Það gæti nýst í ferðaþjónustu, sem skólaskip eða í einhvers lags opinberri móttöku. Hollvinasamtök um Maríu Júlíu voru stofnuð á síðasta ári og það voru Háskólasetur Vestfjarða, Landhelgisgæslan, Hafrannsóknastofnun og fleiri velunnarar sem stóðu að því og nú er unnið að því að leita stuðnings við þetta góða verkefni hjá ráðherrum og Alþingi svo hægt sé að fjármagna nauðsynlegar viðgerðir til að bjarga megi þessu krúnudjásni, sem er sjósafngripur um haf- og strandmenningu 20. aldar.

Öflugt björgunarskip sem bjargaði mannslífum

Í kjölfar fjölda sjóslysa á Vestfjörðum þá fór af stað söfnun á sínum tíma fyrir björgunarskipi og það voru fyrst og fremst slysavarnadeildir og konur á Vestfjörðum sem söfnuðu fyrir einum þriðja hluta verðs skipsins. Skipið heitir eftir Maríu Júlíu Gísladóttir frá Ísafirði en þau hjónin María Júlía og Guðmundur Guðmundsson létu arf sinn renna til smíði skipsins. Skipið var um margt merkilegt og var fyrst skipa við Íslandsstrendur sem útbúið var rannsóknarstofu til hafrannsókna og sjómælinga. Sem björgunarskip reyndist María Júlía vel og veitti aðstoð 251 skipi með 1949 áhafnarmeðlimum og bjargaði 12 mönnum af sökkvandi skipum á fyrstu 13 árum sínum sem björgunarskip. Ég tel að okkar samfélag sé það ríkt í samanburði við þann tíma þegar þessu skipi var ýtt út vör að við eigum að sýna dugnaði og fórnfýsi fyrri kynslóða þann og bjarga þessum miklu verðmætum og mun ég leggja mig fram um að vinna að því með þeim sem hafa dregið þetta verkefni áfram í gegnum tíðina.

Höfundur er varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search