PO
EN

VARÚÐ: Lengsti status í heimi!

Deildu 

Umhverfisráðherra ber sér á brjóst eftir umræðu síðustu daga um veitingastaði sem standa í stappi við heilbrigðiseftirlitið. Hann hefur nú auglýst reglugerð í samráðsgátt stjórnvalda sem gengur út á að fella út starfsleyfisskyldu fyrir ýmis konar rekstur. Mig grunaði hálfpartinn hvað þar myndi leynast… og sjá: sá grunur reyndist réttur!

Smá baksaga: Næsta hús við blokkina okkar, Eskihlíð 10 & 10a er hvorki blokk númer 8 eða 12, heldur hús við Skógarhlíð. Það hýsti í mörg ár sjúkraþjálfunarmiðstöð og var m.a. nýtt til kennslu í þeirri grein við Háskólann að mér skilst. Einn daginn var því breytt í ódýrt hostel með smá kaffihúsi í anddyrinu. Allt í fínu með það.

Einn laugardagsmorgun vöknuðum við íbúarnir við að komnar voru vinnuvélar sem ruddu til á bílaplaninu fyrir framan gistiheimilið. 2-3 tré í borgarlandinu voru felld – í óleyfi fréttum við síðar – og innkeyrslum á planið breytt. Sama dag sá einhver auglýsingu á netinu um að rútufyrirtæki væri farið að skipuleggja ferðir á Keflavíkurflugvöll. Hostelið í Skógarhlíð var orðið að samgöngumiðstöð og við tók tímabil þar sem rútur voru ræstar, þær bökkuðu með tilheyrandi viðvörunarblístrum og farangursgeymslum var skellt frá klukkan hálf fjögur á morgnanna og framyfir miðnætti. – Reyndar hafði hávaðinn ekki mikil áhrif á okkur í kjallaranum, því við höfðum vernd af gróðri og hljóð berst upp á við, en þetta rýrði verulega lífsgæði margra annarra í húsinu.

Við lögðumst að sjálfsögðu í símann og sendum tölvupósta á alla mögulega aðila. Þar á meðal höfðum við samband við bæði skipulagið og heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík. Á öðrum staðnum fengum við það svar að það væri nú ekki mikið við þessu að gera, vegna þess að það hefði verið rútustoppustöð fyrir framan þetta hús fyrir nokkrum áratugum þegar Hafnarfjarðarvegurinn lá um Skógarhlíð!

Eitt af fáum tækjum sem við íbúarnir höfðum var að kalla eftir starfsleyfi samgöngumiðstöðvarinnar. Þá kom í ljós að það var ekkert starfsleyfi, þótt lögin um Hollustuhætti og mengunarvarnir teldu samgöngumiðstöðvar sérstaklega upp sem dæmi um starfsleyfisskyldan rekstur. Við spurðum borgina út í hverju þetta sætti og fengum þau svör að þetta hefði eiginlega verið látið slæda vegna þess að fyrir Alþingi lægi frumvarp um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem gerði ráð fyrir að ýmis starfsemi yrði undanskilin þessum reglum – þar með talið samgöngumiðstöðvar.

Eins og fram hefur komið á þessum vettvangi er blokkin Eskihlíð 10 & 10a afar samheldin og við rigguðum í skyndi upp umsögn til þingnefndar um lagabreytinguna. Þar færðum við rök fyrir því hversu fráleitt það væri að líta á rútubílamiðstöð með bílum í lausagangi og stífri umferð farþega nær allan sólarhringinn sem létta atvinnustarfsemi sem kæmi engum öðrum við. Í kjölfarið vorum við kölluð á fund nefndarinnar, þar sem ég og Sigrún Daníelsdóttir Flóvenz áttum gott spjall við þingmenn og útskýrðum fyrir þeim að reglur á borð við starfsleyfi fyrirtækja væru ekki settar til þess eins að þvælast fyrir vöskum atvinnurekendum heldur hefðu þær oft líka þann tilgang að vernda fólk á heimilum sínum.

Þegar þingið afgreiddi frumvarpið hafði nefndin sameinast um ýmsar breytingar, þar á meðal var rækilega grisjaður listinn yfir starfsemi sem væri undanþegin starfsleyfisskyldu. Samgöngumiðstöðvar þyrftu áfram starfsleyfi.

Eftir þessar lyktir þingmálsins var ljóst að rútustöðin í Skógarhlíð þyrfti starfsleyfi eftir allt saman. Borgin leysti það á frekar súran hátt. Gefið var út starfsleyfi sem tiltók eitt og annað um hvernig haga skyldi málum inni í húsnæðinu, s.s. varðandi klósett og þess háttar. Skilyrði um rútuflotann á planinu og hávaðann af honum voru látin liggja milli hluta, líkt og að rútukeyrsla væri ótengd rekstri rútumiðstöðvar. Dæs.

(Það eru enn rútur að keyra til og frá miðstöðinni, en eftir að fyrirtækið missti samninginn um flugrútuna er umferðin bara brot af því sem áður var og að mestu hætt á nóttunni.)

En eins og mig grunaði ætlar Jóhann Páll nú að aflétta starfsleyfisskyldu af samgöngumiðstöðvum, til þess að næstu íbúar sem lenda í því að einhverjir peningamenn sem ákveða að hefja stífan rútuakstur í garðinum þeirra á öllum tímum sólarhringsins verði enn varnarlausari. Nú er ég ekki lögfræðingur en ég á bágt með að skilja hvernig ráðherra á að geta með reglugerð aflétt leyfisskyldu af starfsemi sem þingið er nýlega búið að árétta með breytingu á lögunum um málaflokkinn að skuli áfram vera leyfisskyld.

Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi VG

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search