PO
EN
Search
Close this search box.

Verð­bólga og græðgi

Deildu 

Græðgisbólga eða greedflation, vísar til þess þegar fyrirtæki nýta verðbólgu til að auka hagnað sinn með því að hækka vöruverð meira en nauðsyn krefur. Hagnaður innlendra matvörurisa hefur aukist verulega síðustu misseri. Þetta bendir til þess að fyrirtækin séu að nýta sér aðstæður til að bæta eigin hag og auka framlegð á kostnað neytenda. Hagnaðardrifin verðbólga er raunverulegt fyrirbæri og stafar af því þegar fyrirtæki hækka verð meira en réttlætanlegt er vegna efnahagsaðstæðna hverju sinni. Þetta þýðir einfaldlega að hveiti og kartöflur kosta meira en þörf er á vegna þess að matvöruverslanir eiga þess kost að hámarka hagnað sinn á þinn kostnað.

Við búum við skort á samkeppni hér á landi og geta markaðsráðandi öfl auðveldlega samræmt verðhækkanir án mikillar samkeppni sem annars héldi niðri verðlagi, enda græða allir jafnt á því, nema almenningur. Það er ömurleg staða á verðbólgutímum að hagnaður stórfyrirtækja aukist óhóflega á kostnað almennings. Það er fólkið í landinu sem ber þungann af þessum verðhækkunum og þurfa jafnvel að safna skuldum til að halda í við verðlagshækkanir, á tímum þar sem peningar eru ógeðslega dýrir.

Það eru stórfyrirtæki sem stjórna verðlagningunni allt frá innflutningi yfir í matarkörfuna þína. Fjöldi greininga hefur sýnt hvernig stórfyrirtæki nýta sér almennt verðbólgu til að hækka verð jafnvel þegar kostnaðarhækkanir réttlæta það ekki. Græðgi sem þessi grefur undan trausti almennings, græðgi sem eykur ójöfnuð. Það er alveg ljóst að við þurfum að stórefla eftirlit með verðlagningu og auðvelda rannsóknir á óeðlilegum hagnaðardrifnum verðhækkunum almenningi til varnar. Það er hlutverk stjórnvalda að verja neytendur, þar þurfum við að gera miklu betur og gætum t.a.m. stigið inn með því að setja þak á verðlagningu á nauðsynjavörum þegar á brattann sækir. Við getum líka gert betur í samráði við verkalýðsfélög og samtök neytenda til að tryggja að launahækkanir leiði ekki sjálfkrafa til verðhækkana, heldur að fyrirtæki sýni sjálfsagða samfélagslega ábyrgð og ýti ekki launahækkunum út í verðlag.

Matvöruverslanir sem stór hluti landsmanna treysta á, hafa í skjóli verðbólgu rakað inn milljörðum og aukið hagnað sinn svo um munar, hagnað sem endar í vösum eigenda á meðan almenningur stendur í stórræðum til að sjá sér farborða. Svona viljum við ekki hafa þetta. Græðgi er skýrasta birtingarmynd vár kapítalismans, þar sem auðstéttin ræður ferðinni og almenningur ber byrðarnar. Hagnaður sem skapast á kostnað vinnandi fólks ætti að renna aftur til samfélagsins, ekki í vasa auðjöfra sem hlýja sér á verðbólgubálinu.

Höfundur er frambjóðandi VG í 2. sæti í Norðvesturkjördæmi.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search