Search
Close this search box.

Verður þér að góðu?

Deildu 

Nú þegar rúmlega fjörutíu sveitarfélög vinna eftir nálguninni um heilsueflandi samfélag ásamt fjölbreyttum vinnustöðum þar á meðal mörgum leik-, grunn- og framhaldsskólum er mikilvægt að horfa til matarmenningar og neysluhátta. Markmið heilsueflandi samfélags, skóla og annarra vinnustaða er að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum þar sem hlutverk mataræðis er stórt. Nú þegar matur bæði í leik- og grunnskólum er á forræði sveitarfélaga eyks ábyrgð þeirra hvað varðar heilsu og vellíðan. Ábyrgð og tækifæri til að hlúa að heilbrigðum neysluháttum. Sveitarfélög eru hvött til að tryggja að núgildandi ráðleggingum um mataræði, handbók fyrir grunnskólamötuneyti frá 2021, sé fylgt í skólaeldhúsum landsins. 

Sumarið 2023 kynnti landlæknir nýjar norrænar næringarleiðbeiningar. Hér er um að ræða umfangsmikla uppfærslu byggða á áhrifum á heilsu og umhverfi þegar kemur að mataræði. Næringarráðleggingarnar voru unnar af hópi sérfræðinga skipuðum fulltrúum frá heilbrigðis- og matvælayfirvöldum allra Norðurlandanna. Þar segir meðal annars að mataræði úr jurtaríkinu, svo sem grænmeti, belgjurtir, ávextir og ber, eigi að vera ráðandi. Heilkornavörur skuli vera í fyrirrúmi, mælt er með því að neyta fisks tvisvar til þrisvar í viku og hóflegri neyslu á fituminni mjólkurvörum. Einnig er mælt með því að sleppa unnum matvælum og takmarka kjötneyslu.

Hér á landi hefur verið skipaður faghópur á vegum embættis landlæknis til að endurskoða opinberar ráðleggingar um mataræði á Íslandi sem hafa verið í gildi síðan 2014. Þær koma til með að byggja á Norrænu næringarráðleggingunum en einnig verður tekið tillit til íslenskra aðstæðna, þar á meðal niðurstaðna úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2019 til 2021. Forvitnilegt verður að fylgjast með þegar þessar breytingar koma til framkvæmda í skólum landsins og handbók fyrir skólamötuneytin verður uppfærð, þar sem jurtafæði og vönduðum fiskréttum er gert hátt undir höfði.

Hvað ræður? Hráefnis­kostnaður­inn, meðferð hráefnis eða umhverfið?

Í leikskólum landsins borða öll börn saman og þar þróast ákveðinn matarmenning í litlum hópum. Mörg börn smakka í fyrsta sinn hinar ýmsu fæðutegundir í leikskólum og þar er gjarnan jákvæðara viðmót meðal annars til jurtafæðis og fiskneyslu. Þetta breytist í mörgum tilfellum á næsta skólastigi, hvað sem veldur. Viðhorf breytast og verða oft neikvæð til ákveðinna fæðuflokka og þrátt fyrir að mörg börn séu í mataráskrift er misjafnt hver borða í raun á skólatíma. Það er von til þess að þetta breytist með nýjum lögum um gjaldfrjálsar máltíðir í grunnskólum og að þar byggist upp svipuð menning og í leikskólunum, að öll borða eitthvað þó ekki endilega allt. 

Vissulega háir það mörgum grunnskólum hve mörg börn borða á sama tíma og að eftirlit og aðstoð við að setja hæfilegt magn og fjölbreytt á diskinn getur verið ábótavant. Tilvalið væri að nota tækifærið og breyta leiknum samhliða lögunum um gjaldfrjálsar máltíðir í grunnskólum. Viðhalda stemningunni úr leikskólum fram yfir yngsta stigið og skoða hvort það hafi áhrif á neyslumynstur og viðhorf til fæðuflokka til framtíðar. Máltíðir í skólamötuneytum eru risastórt lýðheilsumál og unnin matvæli eiga ekki að sjást í þar. Þeir foreldrar sem kjósa að kynna slíkt fyrir börnum sínum geta vitanlega gert það utan skólatíma. Áhersla ætti að vera á holla valkosti með sem lægst kolefnisspor og framleidd í héraði sé það kostur.

Ef við ætlum að efla lýðheilsu með tilliti til lýðheilsuvísa og stuðla að heilbrigðum matarvenjum þar sem hollusta  og heilnæmi er sett á oddinn verður að vera eftirfylgni með mötuneytum allra skólastiga. Það þarf hvoru tveggja að fræða og hlusta á raddir barnanna en fyrst og fremst að sjá til þess að öll börn séu umkringd næringarríkum matvælum í skólaumhverfinu. Eins er mikilvægt að gefinn sé rúmur tími til að matast, að börn fái góðan tíma til að njóta matarins og ástunda þannig heilbrigðar matarvenjur í stað þess að matartíma sé hraðað til þess að þau missi ekki af útivist eða öðrum frítíma.  

Við fögnum þessum nýju leiðbeiningunum, hlökkum til að sjá hvernig útfærslurnar verða í handbók fyrir skólamötuneyti og hvernig þær endurspeglast á matseðlum skólanna. Það verður til fyrirmyndar að sjá áherslu á umhverfi og góða næringu þar sem meðal annars heilkornabrauð, grænmeti, ávextir og ber eru í forgrunni. Vel nærð bernska og réttir neysluhættir ættu að vera heillavænleg til framtíðar.

Álfhildur Leifsdóttir, grunnskólakennari, formaður Sveitarstjórnarráðs VG
og stjórnarkona
Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, leikskólastjóri,
stjórnarkona Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og oddviti hreyfingarinnar í Suðurkjördæmi 

Hólmfríður Sigþórsdóttir, kennslufræðingur
og flokkráðsfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search