Search
Close this search box.

VG forval í Suðvesturkjördæmi

Deildu 

Kjördæmisþing Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi ákvað á fundi nú síðdegis að hafa forval í efstu sæti á framboðslista hreyfingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar 25. september næstkomandi.  Áður höfðu Vinstri græn í Norðausturkjördæmi og Vinstri græn í Suðurkjördæmi ákveðið forval, svo þetta er þriðja kjördæmið, þar sem VG velur forval sem aðferð. Norðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmin hafa ekki enn ákveðið hvernig vali á framboðslista verður háttað.

VG í Suðvesturkjördæmi kaus sér stjórn á fundinum síðdegis. Björg Sveinsdóttir, Hafnarfirði er nýr formaður kjördæmisráðsins, en aðrir í stjórn eru Anna Þorsteinsdóttir, Kópavogi, Ásbjörn Þ. Björgvinsson, Kópavogi, Ástvaldur Lárusson, Hafnarfirði, Egill Arnarson, Seltjarnarnesi, Gunnsteinn Ólafsson, Garðabæ og Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir, Mosfellsbæ.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search