17. janúar 2022
Félagsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík ákvað með kosningu á félagsfundi í gærkvöld 17. janúar 2022 að halda forval um þrjú efstu sæti á lista hreyfingarinnar til framboðs í borgarstjórnarkosningum í vor.
Tvær tillögur voru lagðar fram fyrir fundinn, önnur um uppstillingu en hin um forval í þrjú efstu sætin. Tillagan um forval var samþykkt með miklum meirihluta, eða 93% atkvæða.
Jafnframt var kjörnefnd kosin á fundinum og mun hún annast framkvæmd forvals og uppstillingu listans í kjölfar forvals. Í kjörstjórn voru kosin Elías Jón Guðjónsson, Álfheiður Ingadóttir, Torfi Stefán Jónsson, Guy Conan Stewart og Elínrós Birta Jónsdóttir.
F.h. stjórnar VGR,
Elín Björk Jónasdóttir, formaður