PO
EN

VG og óháð bjóða fram í Kópavogi

Deildu 

Vinstri græn hafa ákveðið að bjóða fram lista undir merkjum Vinstri grænna og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti VG, mun leiða listann. Framboðslistinn verður kynntur í heild sinni eftir páska. Vinstri græn eiga jafnframt í viðræðum við fleiri áhugasama aðila sem vilja leggja framboðinu lið.

Bæjarmálafélagið Fyrir Kópavog hefur ákveðið að draga sig úr samstarfinu fyrir komandi kosningar. VG virðir þá ákvörðun og þakkar samstarfið.

Vinstri græn og óháð bjóða fram skýran og róttækan valkost fyrir Kópavog sem byggir á öflugri velferð, húsnæðisöryggi, umhverfis- og náttúruvernd, sterkri nærþjónustu og raunverulegu íbúasamráði. Við teljum mikilvægt að í bæjarstjórn Kópavogs sé skýr og ábyrg rödd sem stendur með fólkinu í bænum og ver dýrmæt útivistarsvæði og náttúru.

Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti, segir:

„Við erum sannfærð um að það á að vera frábært fyrir okkur öll að búa í Kópavogi. Við ætlum að auðvelda ungu fólki að tryggja sér húsnæði, endurskoða Kópavogsmódelið í þágu foreldra og barna og standa vörð um lífsgæði, umhverfi og náttúru bæjarins.

Kópavogur á að vera samfélag sem heldur utan um fólk og grípur það þegar á þarf að halda. Við viljum leggja grunn að sterku samfélagi og gera Kópavog að enn betri bæ fyrir okkur öll. Kópavogur er samfélag, ekki hlutafélag.“

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search