EN
PO
Search
Close this search box.

Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael

Deildu 

Eftir heilt ár af linnulausum og grimmilegum hernaði Ísraels gagnvart Palestínumönnum getur alþjóðasamfélagið ekki setið hjá lengur. Brýnt er að ríki heims taki sig saman um aðgerðir sem setja raunverulegan þrýsting á ísraelsk stjórnvöld. Stórt skref í þá átt var stigið á miðvikudag þegar Ísland var í hópi 124 ríkja sem samþykkti ályktun um Palestínu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem þess er krafist að Ísrael endi ólöglegt hernám sitt á Gaza. Í ályktuninni var einnig hvatt til þess að ríki beiti refsiaðgerðum gegn Ísrael og raunar öllum sem styðja viðveru Ísraels á Gaza auk þess að stöðva vopnaflutning og vopnasölu til Ísraels.

Markmið alþjóðlegra þvingunaraðgerða er að viðhalda friði og öryggi og/eða tryggja virðingu fyrir mannfrelsi og mannréttindum. Ályktun allsherjarþingsins er ekki lagalega bindandi en svo breiður stuðningur við hana endurspeglar álit alþjóðarsamfélagsins. Riyad Mansour, sendiherra Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum sagði að niðurstaða þingsins væri vendipunktur í baráttu Palestínumanna fyrir frelsi og réttlæti, skýr skilaboð alþjóðasamfélagsins um að hernám Ísraela verði að líða undir lok.

Ísland framfylgir nú þegar þvingunaraðgerðum gagnvart 30 ríkjum, auk hryðjuverkasamtaka. Hérlendis eru þvingunaraðgerðir ákveðnar í samvinnu við alþjóðastofnanir, ríkjahópa eða samstarfsþjóðir samkvæmt lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna.

Nauðsynlegt að ganga lengra

Síðastliðin ár hef ég árlega lagt fram tillögu þess efnis að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að grípa til nauðsynlegra ráðstafana annars vegar til að merkja uppruna vara sem framleiddar eru á hernumdum svæðum Palestínu með viðeigandi hætti og hins vegar til að gera Palestínumönnum kleift að nýta sér kosti fríverslunarsamnings EFTA og Palestínu. Sú tillaga er að sjálfsögðu enn góðra gjalda verð en í ljósi þeirra stanslausu voðaverka sem heimsbyggðin hefur orðið vitni að síðast tæpa árið er full ástæða til að ganga lengra.

Í síðustu viku lagði ég því fram þingsályktunartillögu þar sem ríkisstjórn Íslands er falið að beita sér fyrir því að alþjóðlegum viðskiptaþvingunum verði komið á gagnvart Ísrael vegna framgöngu Ísraelshers í Palestínu.

Viðskipti milli Íslands og Ísraels eru óveruleg og einhliða viðskiptaþvinganir af Íslands hálfu hefðu einungis táknræn áhrif hérlendis en lítil sem engin áhrif á viðskiptahagsmuni Ísraels. Öðru máli gegnir ef helstu samstarfsríki, að frumkvæði Íslands, tækju sig saman um slíkar aðgerðir, hvort sem væri Norðurlandaþjóðirnar saman eða ríki Evrópska efnahagssvæðisins.

Ísland í fararbroddi

Árið 2011 viðurkenndi Ísland Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Svíþjóð hefur sömuleiðis viðurkennt sjálfstæði Palestínu og nýlega hafa Noregur, Írland og Spánn einnig bæst í hópinn. Það er löngu tímabært að alþjóðlegum viðskiptaþvingunum verði komið á gagnvart Ísrael. Það mætti hugsa sér að slíkt yrði t.d. gert í samráði og samtali við þess lönd.

Afstaða Íslands í fyrrnefndri ályktun Allsherjarþingsins og því sem kemur þar fram gefur til kynna að ekkert sé því til fyrirstöðu að Alþingi samþykki þingsályktunartillögu mína. Ef 124 ríki gátu komið sér saman um að samþykkja þessa ályktun, þar á meðal Ísland, hlýtur Alþingi að geta komist að sömu niðurstöðu.

Þjóðarmorðinu á Gaza verður að linna og við getum lagt okkar lóð á vogarskálarnar til að svo megi verða. Alþjóðlegar viðskiptaþvinganir geta gegnt veigamiklu hlutverki í því.

Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður VG

Greinin birtist á Vísi 20. september 2024

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search