Search
Close this search box.

Viltu auka­frí­viku(r)?

Deildu 

Hvað myndum við gera ef við ættum meiri tíma? Myndum við sofa lengur, hreyfa okkur meira, hitta fleira fólk, eða lesa fleiri bækur. Myndum við hanga lengur á netinu eða fara bara oftar í ræktina?

Myndi okkur líða betur? Myndu fleiri fá vinnu eða myndu bara allir vinna minna? Eða myndu einhverjir vinna meira?

Þessar spurningar geta verið endalausar en verða allar uppi þegar við styttum vinnuvikuna. Ég segi þegar, því mér finnst þetta vera svo augljóst. Að við munum halda áfram að stíga þau skref sem voru fyrst stigin í tengslum við Lífskjarasamningana og verða vonandi stigin áfram í þeirri kjarasamningalotu sem nú stendur yfir. 

Fyrir hverja vinnustund fáum við viku í frí á ári

Fyrir hverja vinnustund sem vinnuvikan er stytt um má gera ráð fyrir að við fáum til umráða tíma sem svarar 40-45 klukkustundum á ári.  Það eru 5-6 vinnudagar. Fjögurra stunda stytting vinnuvikunnar gæti því orðið sem svarar 160-180 tímar á ári fyrir einstakling í fullu starfi. Stytting vinnuviku vaktavinnufólks í 32 stundir,  eins og nokkuð hefur verið rætt, gæti þá þýtt á bilinu 320-360 tímar á ári. Eftir því hvar línan er dregin gætu þetta verið frá einni vinnuviku í auka „mig-tíma“ upp í 8. Seinni talan er meiri tími en flestar stéttir hafa í orlof í dag.  Með því að líta sérstaklega til vaktavinnufólks í þessu sambandi er horft til þess aukaálags sem hlýst af því að vinna á óhefðbundnum tímum, á stórhátíðum, helgum, nóttinni og kvöldin, þegar aðrir eru í fríi.

Auðvitað hlytist af kostnaður. Það segir sig sjálft að ef þarf að manna vaktir og vinuskyldan hefur minnkað þarf til þess meiri mannskap.  Í einhverjum tilfellum verður hægt að mæta a.m.k. hluta breytinga með endurskipulagningu og hliðrunum á vinnutíma og vinnuskilum, en það er óhjákvæmilegt að  fleiri þurfi til að sinna vinnu í vaktavinnuhópum.  Þá gætu menn haft áhyggjur af því að ekki fengist fólk til starfa. Ég tel hins vegar að það ætti að vera auðveldara að manna vaktavinnustörf þegar menn sjá að vinnuskilin verða minni.  Eins hafa þær tilraunir sem hafa verið gerðar hér á landi með styttingu að fjarvistum fækkar og starfsánægja eykst.

Kjarabót sem verðbólga étur ekki

Þær samfélagsbreytingar sem nú eiga sér stað kalla á breytingar á vinnuvikunni og meiri sveigjanleika fyrir vinnandi fólk. Ég er viss um að við myndum  dvelja meira með fjölskyldu  og vinum ef við ættum meiri tíma. Við myndum fara oftar í heimsóknir til ömmu, mömmu eða frænku. Eða bara  heimsóknir yfirleitt. Við myndum líklega gefa okkur meiri tíma til að komast milli staða með um hverfisvænum hætti. Við myndum jafnvel gefa okkur tíma til að borða hollari mat og matbúa sjálf.

Sú samfélagsbreyting sem gæti orðið með styttri vinnuviku yrði mjög jákvæð. Sú kjarabót sem í því fælist yrði heldur ekki frá okkur tekin með verðbólgu, gengisfellingum eða vaxtahækkunum. Við gætum brosað alla leið heim.

Ólafur Þór Gunnarsson, höfundur er þingmaður Vinstri grænna.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search