PO
EN

Vindgnauð

Deildu 

Í mars sl. skilaði starfshópur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skýrslu um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum með vísan til áherslna og markmiða stjórnvalda í loftslagsmálum. Markmið og tilgangur skýrslunnar var að draga fram staðreyndir á grundvelli faglegra sjónarmiða og upplýsinga um lykilþætti á sviði orkumála á aðgengilegu formi til upplýsinga fyrir stjórnvöld, hagaðila og almenning. Það var ekki verkefni starfshópsins að taka afstöðu til tillagna, álitaefna, sviðsmynda eða tiltekinna orkuskiptaaðgerða heldur draga saman stöðuna eins og hún er. Ég er einn þeirra sem batt vonir við að stöðuskýrslan myndi skýra málin frekar og hjálpa okkur að komast lengra í átt að þeim mikilvæga áfanga að átta okkur á hver raunveruleg orkuþörf okkar væri m.t.t. loftslagsmarkmiða.

Eins og skýrslan ber með sér þá reyndust einungis tiltækar sex sviðsmyndir um orkuþörf landsins þó vissulega séu í umæðunni fleiri hugmyndir um hvernig mæta megi væntri orkuþörf til orkuskipta, t.d. sú að forgangsraða þegar framleiddri orku með öðrum hætti. Og sú sviðsmynd skýrslunnar sem gengur lengst gerir ráð fyrir ríflega tvöföldun raforkuframleiðslu Íslands; 124% aukningu fram til ársins 2040. Eðli málsins samkvæmt mætti þessi framsetning töluverðri og réttmætri gagnrýni, svo ekki sé meira sagt.

Í ríkisstjórnarsáttmála segir að mikilvægt sé að breið sátt ríki um uppbyggingu vindorkuvera. Nú les maður og heyrir úr fjölmiðlum að formaður téðs starfshóps um stöðuskýrslu gangi erinda fjögurra fyrirtækja sem hafa uppi stórtæk vindorkuáform á Vesturlandi undir heitinu Vestanáttin og tali fyrir þeirri sviðsmynd úr stöðuskýrslunni sem gengur freklegast fram eins og hún sé hinn eini rétti sannleikur. Skiljanlega veldur þessi framganga úlfúð.

Það getur ekki undir nokkrum kringumstæðum talist eðlilegt að formaður starfshóps sem falið var að draga saman efni um stöðu orkumála tali fyrir öfgafyllstu sviðsmyndinni úr skýrslunni umfram aðrar, þá sem kallar á mesta orkuöflun, eins og ekkert annað komi til greina í umræðunni. Það liggur engan veginn fyrir og hefur hvergi verið tekin stefnumarkandi ákvörðun um það að hér þurfi að ríflega tvöfalda raforkuframleiðslu fyrir árið 2040.

Það er ekki úr lausu lofti gripið að lögð er áhersla á það í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að mikilvægt sé að breið sátt ríki um uppbyggingu slíkra vindorkuvera og tillit sé tekið til sjónrænna áhrifa, dýralífs og náttúru. Það að formaður starfshóps stjórnvalda tali fyrir ríflega tvöföldun raforkuframleiðslu hérlendis með því að reisa vindmyllur í stórum stíl er ekki til þess fallið að vinna að breiðri sátt í samfélögum sem um ræðir.

Höfundur er þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search