Vinstrihreyfingin grænt framboð í Suðurkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum á lista hreyfingarinnar í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Framboðsfrestur í efstu fimm sætin rennur út á miðnætti mánudaginn 8. mars 2021.
Þau sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í tölvupósti á netfangið:
Forval verður um fimm efstu sætin á lista verður rafrænt og fer fram dagana 10., 11. og 12. apríl 2021.
Þau sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það með sama hætti fyrir 8. mars 2021 og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Öll sem áhuga hafa á að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuð, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvött til að gefa kost á sér.
Kjördæmisstjórn Suðurkjördæmis annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni og fundum. Forvalsreglur má nálgast á heimasíðu www.vg.is