PO
EN

Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Vor til vinstri mynda bandalag fyrir borgarstjórnarkosningar

Deildu 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Reykjavík og Vor til vinstri hyggjast mynda bandalag og bjóða fram í sameiginlegu framboði í komandi borgarstjórnarkosningum. Ákvörðunin er tekin á grundvelli mikillar samstöðu í málefnum og sameiginlegrar sýnar á réttlátt og sanngjarnt samfélag.

Hreyfingarnar standa hvor annarri nær hvað varðar sýn í lykilmálum og deila þeirri sýn að vinstrisinnað fólk geti og eigi að vinna saman. Í kjölfar síðustu alþingiskosninga, þar sem engin skýr vinstri rödd á lengur sæti á Alþingi, er samstaða vinstrihreyfinga mikilvægari en nokkru sinni fyrr.

Nú er tími til að vinstri sinnað félagshyggjufólk standi saman gegn sundrungu og spyrni við þeirri þróun að pólitíska miðjan færist sífellt lengra til hægri. Slík þróun má ekki verða hinn nýi raunveruleiki í íslenskum stjórnmálum.

Bandalagið er samstíga um að setja fram kosningaáherslur sem taka mið af þörfum fólksins í borginni, tryggja raunveruleg áhrif íbúa og vinna í þágu þeirra. Brýnustu málefni eru barátta gegn fátækt, húsnæðismál, skóla- og menntamál og samgöngu- og skipulagsmál auk þess að beita sér fyrir réttlátri skattheimtu á fjármagnstekjur og efnahagslegu og félagslegu réttlæti. Umhverfismál verða fléttuð inn í allar áherslur bandalagsins. Málefnastarf er framundan og verður unnið með grasrótum hreyfinganna.

Sanna Magdalena Mörtudóttir frá Vori til vinstri mun leiða framboðið og fulltrúar Vors til vinstri skipa einnig fjórða og fimmta sæti. Fulltrúar VG munu skipa annað, þriðja og sjötta sæti listans. Sætum fyrir neðan það verður skipt með jafnræði að leiðarljósi, í hefðbundnum fléttulista.

Félagsfundur VG í Reykjavík haldinn 18. janúar 2026 lýsti stuðningi við áform um sameiginlegt framboð með Vori til vinstri og fól stjórn VGR að ljúka við vinnu við endanlega tillögu að framboðinu. Einnig var samþykkt að halda forval til að velja fulltrúa VG á listanum í þau 3 efstu sæti sem koma í hlut VG. Það verður gert með forvali sem mun fara fram helgina 20.-22. febrúar nk. með rafrænum hætti.

Með þessu bandalagi eru send skýr skilaboð: vinstrið getur skapað sér framtíð þegar það vinnur saman í þágu borgarbúa.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search