Tímamót í sögu VG
Verið er að rita sögu VG og þar leggur fjöldi félaga sitt að mörkum.
Nú gefst tækifæri á að kaupa bókina í afmælisáskrift.
Þeir sem það gera fá nafn sitt skráð í bókina í „tabula gratulatoria“, hamingjuóskalista.
Í boði er þrennskonar áskrift að afmælisbókinni á kostakjörum!
Gulláskrift 15.000 krónur.
Silfuráskrift 10.000 krónur.
Bronsáskrift 5.000 krónur.
Söguritari VG er Pétur Hrafn Árnason, sagnfræðingur.
Félagar á póstlista VG hafa þegar fengið tilboðið sent, en fyrir ykkur hin er hægt að nálgast greiðslur hérna á síðunni og það er ekki skilyrði að vera skráður félagi í VG til að kaupa afmælisáskrift.