PO
EN
Stangarhylur 4

Desemberfundur EVG

11. desember
kl. 20:00

Kæru félagar!

Síðasti EVG fundur ársins verður haldinn 11. des. kl. 20 í Stangarhyl 4, húsnæði FEB.

Ýmislegt hefur skollið á okkur að undanförnu og mun Svandís Svavarsdóttir formaður ávarpa okkur i upphafi þessa jólafundar. Þá mun Katrín Jakobsdóttir segja okkur frá ýmsu sem drifið hefur á daga hennar að undanförnu, kannski einhverjir glæpir? Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG rekur ótrúlega sögu af nærri 100 ára gömlum atburðum, en árið 1926 kom lítil fjölskylda til Íslands með sirkusdýr í farteskinu. Hún vakti mikla athygli Reykvíkinga sem ákváðu þegar að fólkið hlyti að vera sígaunar – en ekki er allt sem sýnist. Og svo syngjum við auðvitað, góð æfing fyrir jólin.

  • Svandís Svavarsdóttir formaður ávarpar fundinn.
  • Katrín Jakobsdóttir fyrrv. forsætisráðherra segir frá.

  • Kaffi og spjall.
  • Hvað þá, sígaunar á Íslandi?  Stefán Pálsson sagnfræðingur kafar í söguna.
  • Og söngur eins og ævinlega – Páll Eyjólfsson, Lena Rist og Sigurður Alfonsson leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna, Gunnar Guttormsson gefur tóninn.

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið – munið seðil í kaffisjóðinn!  –  Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.  Næsti fundur verður 12. febrúar 2025.

Hittumst heil.

Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar  en veit kannski ekki af þeim.

Undirbúningshópurinn:

Bryndís 861 9186, Þóra Elfa 824 6518, Þuríður Backman 861 9031.

 __________________________

Almennt um fundina:

Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að  – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search