Hreyfing rauð og græn – Saga VG 1999-2019
Eftir Pétur Hrafn Árnason
Í riti þessu er dregin upp mynd af 20 ára sögu Vinstrihreyfingarinnar– græns framboðs, stjórnmálahreyfingar sem á rætur að rekja til uppbrots flokkakerfis, sem þroskast og dafnar á umbrotatímum í samfélaginu. Þetta er í senn saga þrautseigju og sannfæringar fyrir mikilvægi stefnumála sem þóttu framsækin en hafa síðar öðlast almenna viðurkenningu. En þetta er líka átakasaga.