Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn í sveitinni hjá honum Mumma þar sem hann ætlar að vígja glænýtt grill og boðið verður til grillveislu.
Dagskrá:
19:00-20:00 Grillið hitað og almennt spjall á meðan maturinn verður klár.
20:00–21:00 Almenn fundarstörf þar sem kosin verður ný stjórn kjördæmisráðs Suðvesturs.
Við hvetjum öll til að bjóða sig fram til starfa í stjórn kjördæmisráðsins en það má lesa nánar um starfsemi og tilgang þess hér.
Leiðarlýsing:
Beygt inn á afleggjara til hægri af Meðalfellsvegi eftir að komið er yfir ána Bugðu. Á skilti við vegamótin stendur: Hjarðarholt og svo stendur líka Bugðuós. Hér má sjá staðsetningu á korti.
Sjáumst í Kjósinni og bjóðum sumarið velkomið í góðum félagsskap!