Search
Close this search box.
Hjarðarholtsvegi 13, 276 Mosfellsbæ

FUNDI FRESTAÐ: Aðalfundur kjördæmisráðs Suðvesturs

20. apríl
kl. 16:00

*** Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hjá Guðmundi Ingi þá getur hann ekki tekið á móti gestum á Aðalfund Kjördæmisráðs Suðvestur á laugardaginn 20. apríl. Fundi er því frestað. Ný dagsetning verður kynnt fljótlega.  ***

Aðalfundur kjördæmisráðs Suðvestur verður haldinn í sveitinni hjá Guðmundi Inga Guðbrandssyni, ráðherra og formanni VG. Aðalfundurinn hefst stundvíslega klukkan fjögur laugardaginn 20. apríl, en eftir fundinn munum við spjalla, grilla og skála.

Dagskrá

16:00 – Aðalfundur kjördæmisráðs Suðvestur

17:00 – Spjallað á léttum nótum um verkefni komandi mánaða, meðan Guðmundur Ingi kveikir upp í grillinu. 

18:00 – Grillum, borðum, skálum og njótum góðs félagsskapar í sveitasælunni hans Guðmundar Inga.

Sjáumst í Kjósinni og tökum snemma á móti sumrinu í góðum félagsskap!

Á aðalfundi fer fram kosningu nýrrar stjórnar kjördæmisráðs Suðvesturs og almenn aðalfundarstörf.

Við hvetjum öll til að bjóða sig fram til starfa í stjórn kjördæmisráðsins en það má lesa nánar um starfsemi og tilgang þess hér.

Leiðarlýsing:

Beygt inn á afleggjara til hægri af Meðalfellsvegi eftir að komið er yfir ána Bugðu. Á skilti við vegamótin stendur: Hjarðarholt og svo stendur líka Bugðuós. 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search