Aðalfundur kjördæmisráðs Norðvesturkjördæmis
Aðalfundur kjördæmisráðs VG í Norðvesturkjördæmi verður haldinn fimmtudaginn 22. ágúst nk. í Menningarhúsinu Miðgarði, Varmahlíð.
Fundurinn hefst klukkan 20:00
Efni fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Minnt er á að hvert svæðisfélag innan kjördæmisráðsins á, samkvæmt lögum VG, rétt á að tilnefna á aðalfund kjördæmisráðsins einn fulltrúa fyrir hverja fimm félaga.
Stjórn kjördæmisráðs VG í Norðvesturkjördæmi.