Stjórn svæðisfélags VG í Árnessýslu heldur aðalfund á Eyrarbakka 26. október. Fundurinn verður haldinn í byggðasafni Árnesinga, skrifstofa Búðarstíg.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, undirbúningur landsfundar og sérstakur gestur fundarins er Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður, sem fer yfir stjórnmálaástandið og stöðuna á Alþingi.
Félagar í VG eru hvattir til að bjóða sig fram í stjórn og sem fulltrúa á landsfund VG í mars.
Fh. stjórnar, Sædís Ósk Harðardóttir og Sigurður Torfi Sigurðsson.