Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Kópavogi fer fram fimmtudaginn 26. janúar kl. 17. Staðsetning fundarins er í sal Hjallakirkju – aðalinngangur. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, er gestur fundarins.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og val landsfundarfulltrúa vegna landsfundar VG sem verður á Akureyri 17.-19. mars 2023.
Tillögur um breytingar á lögum, lagðar fram af stjórn félagsins:
I
6. gr. Í stað annarrar og þriðju málsgreina:
„Fundarboð skal vera í blaði félagsins, næst á undan aðalfundi. Aðalfund má einnig boða með útvarpsauglýsingu, auglýsingum í blöð, á vefsíðu flokksins, með tölvupósti eða bréflega.“
komi:
„Aðalfund skal boða með auglýsingu á vefsíðu VG eða þeim boðleiðum öðrum sem hreyfingin býður upp á auk annarra leiða eftir því sem aðstæður leyfa.“
II
6. gr. 7. töluliður:
Í stað orðins „nýrrar“ komi „fráfarandi“.
Liðurinn verður þá svona: „Afgreidd tillaga fráfarandi stjórnar um félagsgjald fyrir næsta starfsár. Við ákvörðun þess hverju sinni skal tekið mið af ákvörðun flokksstjórnar VG um lágmarksárgjald.“
III
9. gr. Í stað þriðju málsgreinar:
„Fundarboð getur verið með útvarpsauglýsingu, auglýsingum í blöð, á vefsíðu félagsins eða með tölvupósti.“
komi:
„Félagsfundi skal boða með auglýsingu á vefsíðu VG eða þeim boðleiðum öðrum sem hreyfingin býður upp á auk annarra leiða eftir því sem aðstæður leyfa.“
IV
13 gr.: Falli niður
V
14 gr. verði 13. gr.
Ábendingar eða framboð til stjórnar og/eða landsfundarfulltrúa berist til stjórnar á netfangið vgkopavogur@gmail.com. Einnig er hægt að leggja fram tillögur á fundinum ef samþykki viðkomandi liggur fyrir.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, verður gestur fundarins.