Search
Close this search box.

EVG fundur

Góði félagi

 

Fyrsti fundur ársins verður haldinn 13. febrúar kl. 20 í Stangarhyl 4. Fundurinn verður helgaður Magnúsi Kjartanssyni en hann hefði orðið 100 ára  25. febrúar  í ár. Það er af mörgu að taka á hans starfsömu ævi, hann var ritstjóri Þjóðviljans um árabil og gott er að rifja upp beittan tón þess tíma. Fróðlegt er líka að líta yfir þátttöku hans í stjórnmálum með þingsetu og sem ráðherra. Þeir Árni Bergmann og Svavar Gestsson ritstjórar Þjóðviljans og samstarfsmenn Magnúsar  þekktu verk hans vel og ætla að rekja eitt og annað úr lífsstarfi hans. Þingmaðurinn Kolbeinn Óttarsson Proppé ætlar að velja með okkur söngvana og taka undir með hljóðfæraleikurunum okkar sem við gerum líka öll.

  1. Þjóðviljinn var hluti af mér – Árni Bergmann segir frá Magnúsi Kjartanssyni við störf  á Þjóðviljanum, skrif hans og ritstjórnaráherslur.
  2. Stíll mannsins er hann sjálfur – Svavar Gestsson ræðir um stjórnmálastörf Magnúsar á Þjóðvilja, þingi og í stjórnarráði.
  3. Og söngur eins og ævinlega – Reynir Jónasson og Björgvin Gíslason leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna.

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið.  –  Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.  Næsti fundur er 13. mars.

Hittumst heil.

Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar  en veit kannski ekki af þeim.

Undirbúningshópurinn:

Bryndís 861 9186; Ragnheiður 864 3543; Sigurður Ingi Georgsson 8963940; Svanhildur

863 2354; Þóra Elfa 824 6518.

 __________________________

Almennt um fundina:

Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að  – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search