PO
EN
Fjarfundur á Teams

Fastanefndir VG: Allsherjar- og menntamálanefnd

14. desember
kl. 20:00

Næsti fundur Allsherjar- og menntamálanefndar fer fram miðvikudaginn 14. desember klukkan 20. Þar verða til umræðu menntamálin, með sérstakri áherslu á starfsaðstöðu kennara og nemenda. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.

Undir Allsherjar- og menntamálanefnd falla m.a. jafnréttismál, menntamál, menningarmál, íþróttir, rannsóknir, útlendingamál, lögreglumál og dómsmál.

Hópstjórn: Jódís Skúladóttir og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina. Hlekkur á fundinn er hér.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search