Search
Close this search box.
Fjarfundur á Teams

Fastanefndir VG: Allsherjar- og menntamálanefnd

4. janúar
kl. 20:00

Næsti fundur Allsherjar- og menntamálanefndar fer fram miðvikudaginn 4. janúar klukkan 20.

Þetta er annar fundurinn þar sem til umræðu verða menntamálin. Nú verður menntastefnan tekin fyrir, skoðað hvernig megi einfalda hana og skýra hugsjónir hreyfingarinnar í menntamálum.

Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.

Undir Allsherjar- og menntamálanefnd falla m.a. jafnréttismál, menntamál, menningarmál, íþróttir, rannsóknir, útlendingamál, lögreglumál og dómsmál.

Hópstjórn: Jódís Skúladóttir og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Hlekkur á fundinn er hér.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search