Miðvikudaginn 25. janúar klukkan 20 hittist Allsherjar- og menntamálanefnd VG og heldur áfram undirbúningi sínum fyrir flokksráðsfund.
Þessi fundur verður helgaður málefnum hinsegin fólks.
Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.
Undir Allsherjar- og menntamálanefnd falla m.a. jafnréttismál, menntamál, menningarmál, íþróttir, rannsóknir, útlendingamál, lögreglumál og dómsmál.
Hópstjórn: Jódís Skúladóttir og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.