Næsti fundur Allsherjar- og menntamálanefndar fer fram þriðjudaginn 28. nóvember klukkan 20.30.
Til umræðu verða tvö mál. Fyrst verða rædd mál tengd gervigreind og persónuvernd. Sérstakur gestur undir þessum lið verður Ragnar Þór Pétursson, fyrrverandi formaður KÍ.
Einnig munum við ræða tillögu Steinunnar Þóru Árnadóttur um gjaldfrjálsar skólamáltíðir sem hún hefur lagt fram á Alþingi.
Undir Allsherjar- og menntamálanefnd falla m.a. jafnréttismál, menntamál, menningarmál, íþróttir, rannsóknir, útlendingamál, lögreglumál og dómsmál.
Hópstjórn: Sæmundur Helgason og Íris Andrésdóttir
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að næsta landsfundi. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.
Hlekkur á fundinn er hér: https://meet.google.com/gdi-yixr-rfo