Næsti fundur Atvinnuveganefndar fer fram fimmtudaginn 16. febrúar klukkan 18. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.
Á dagskrá fundarins Matvælastefna, Nýsköpunarstefna og landbúnaðarstefna til samþykktar til ritstjórnar fyrir landsfund.
Undir Atvinnuveganefnd falla m.a. sjávarútvegur, landbúnaður, iðnaður, ferðaþjónusta, nýsköpun og byggðamál.
Hópstjórn: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Nanný Arna Guðmundsdóttir
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.
Hlekkur á fundinn er hér.