Fundurinn er mánudaginn 27.nóvember kl.20 er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.
Á fundinum kemur til okkar gestur, Katrín Ólafsdóttir til þess að ræða við okkur kerfislegar hindranir innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði. Á vinnumarkaði í dag eru u.þ.b. 230 þúsund manns og þar af eru rúm 50 þúsund með erlendan bakgrunn. Rannsóknir hafa sýnt óútskýrt launabil eftir bakgrunni á sama tíma og við vitum að sá kröftugi hagvöxtur sem hefur verið á Íslandi síðustu misseri væri ekki mögulegur nema væri fyrir það að hingað flytur fólk í leit að tækifærum og leggur sitt af mörkum til samfélagsins, raunar meira en við sem getum rakið okkur aftur í torfkofa ef marka má sérhefti Hagstofu Íslands um innflytjendur frá árinu 2018.
Hvað er til ráða, hvað finnst okkur í VG, þetta og fleira á næsta fundi EFNAHAGSMÁLAHÓPS VG.
Katrín Ólafsdóttir er hagfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík.
Undir Efnahags- og fjármálanefnd falla m.a. verkefni sem tengjast peningastefnu, ríkisfjármálum, fjármálakerfinu og efnahagsmálum almennt.
Hópstjórn: Klara Mist Pálsdóttir og Kári Gautason.
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að næsta landsfundi. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.