EN
PO
Search
Close this search box.
Fjarfundur á Teams

Fastanefndir VG: Efnahagsmálanefnd – Geta efnahagsmál verið græn?

30. október
kl. 20:00

Á næsta fundi EFNAHAGSMÁLAHÓPS VG verður spennandi umræðuefni, geta EFNAHAGSMÁL verið græn? Hvað með þessi grænu ríkisskuldabréf? Getur hófleg og sanngjörn gjaldtaka á ferðaþjónustu einnig verið loftslagsmál? Hvernig notum við græna skatta á sem skynsamastan hátt.

Þetta og margt fleira á NÆSTA FUNDI EFNAHAGSMÁLAHÓPS VG á mánudagskvöldið 30. október kl. 20:00.

Á fundinum verður sérlegur gestur frá Ungum umhverfisverndarsinnum sem ætlar að ræða þessi mál við okkur.

Mætum sem flest og ræðum EFNAHAGSMÁL.

Undir Efnahags- og fjármálanefnd falla m.a. verkefni sem tengjast peningastefnu, ríkisfjármálum, fjármálakerfinu og efnahagsmálum almennt.

Hlekkur á fundinn er hér.

Hópstjórn: Klara Mist Pálsdóttir og Kári Gautason.

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search