Search
Close this search box.
Fjarfundur Teams

Fastanefndir VG: Stjórnskipunar – og eftirlitsnefnd – Stjórnarskráin

12. október
kl. 19:30

Annar fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd VG fer fram fimmtudaginn 12. október kl. 19.30-21.00 á Teams.

Katrín Jakobsdóttir hefur kynnt nýjar greinargerðir og tillögur um endurskoðun stjórnarskrarinnar – m.a. um mannréttindakaflann, um alþingiskosningar, umhverfi og auðlindir og eftirlitshlutverk dómstóla. Katrín fer yfir stjórnarskármálin með okkur, forsendur fyrir þessum tillögum, hvað hefur breyst, hvað er splúnkunýtt og hvað er næst í málinu. 

Hópstjórn: Bjarki Þór Grönfeldt og Álfheiður Ingadóttir

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Hlekkur á fundinn er hér.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search