EN
PO
Search
Close this search box.
Fjarfundur á Teams

Fastanefndir VG: Umhverfis- og samgöngunefnd

10. janúar
kl. 20:00

Næsti fundur Umhverfis- og samgöngunefndar fer fram þriðjudaginn 10. janúar klukkan 20. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.

Á fundinum verður farið yfir ályktanir og stefnur sem falla undir nefndina. Sérstaklega verður litið á orkustefnuna sem verið er að vinna á meðfylgjandi hlekk. Þau sem hafa tekið að sér ályktunarskrif eru minnt á að þau skrif verða til kynningar á fundinum.

Undir Umhverfis- og samgöngunefnd falla m.a. loftslagsmál, náttúruvernd, skipulagsmál, orkumál, samgöngur og málefni sveitarstjórnarstigsins.

Hópstjórn: Álfhildur Leifsdóttir og Davíð Arnar Stefánsson.

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Hlekkur á fundinn er hér.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search