Search
Close this search box.
Fjarfundur á Google Meet

Fastanefndir VG: Umhverfis- og samgöngunefnd – Virkjanir og orkusparnaður

25. október
kl. 20:00

Næsti fundur Umhverfis- og samgöngunefndar fer fram miðvikudaginn 25. október, frá klukkan 20-21.

Gestur fundarins verður Sigurður Ingi Friðleifsson Sviðstjóri orkuskipta og loftslagsmála hjá Orkustofnun en hann mun ræða um orkumál eins og virkjun sjávarfalla, orkusparnað, snjallmæla og allt það sem er á döfinni í þessum málaflokki í dag.

Undir Umhverfis- og samgöngunefnd falla m.a. loftslagsmál, náttúruvernd, skipulagsmál, orkumál, samgöngur og málefni sveitarstjórnarstigsins.

Hópstjórn: Álfhildur Leifsdóttir og Andrés Skúlason.

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Hlekkur á fundinn er hér.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search