EN
PO
Search
Close this search box.
Fjarfundur á Google Meet

Fastanefndir VG: Umhverfis- og samgöngunefnd – Skipulagsmál

13. júní
kl. 20:00

Umhverfis- og samgöngunefnd VG boðar til fundar fimmtudagskvöldið 13. júní klukkan 20.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skipulagsfræðingur verður gestur fundarins þar sem félagsmönnum gefst færi á að spyrja hana um hvað eina sem varðar skipulagsmál, en reynsla hennar í þeim efnum er sannarlega mikil sem fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar.

Hlekkur á fundinn er hér.

Undir Umhverfis- og samgöngunefnd falla m.a. loftslagsmál, náttúruvernd, skipulagsmál, orkumál, samgöngur og málefni sveitarstjórnarstigsins.

Hópstjórn: Álfhildur Leifsdóttir og Andrés Skúlason.

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að næsta landsfundi. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér.

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search