Umhverfis- og samgöngunefnd Vinstri grænna boða til fundar miðvikudagskvöldið 22. maí klukkan 20 til 21.
Gestur fundarins verður þingflokksformaður Vinstri grænna, Orri Páll Jóhannsson, en hann situr í Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Orri Páll mun sitja fyrir svörum, ræða málin sem liggja fyrir nefndinni og þinglokin framundan.
Fjarfundarhlekkur er aðgengilegur hér.
Undir Umhverfis- og samgöngunefnd falla m.a. loftslagsmál, náttúruvernd, skipulagsmál, orkumál, samgöngur og málefni sveitarstjórnarstigsins.
Hópstjórn: Álfhildur Leifsdóttir og Andrés Skúlason.
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að næsta landsfundi. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.