VGR boðar til félagsfundar næstkomandi fimmtudag. Við höfum Prikið út af fyrir okkur til klukkan 21:00 og ætlum að funda og afgreiða nokkur mikilvæg atriði. Umfram annað ætlum við að hafa gaman saman og þétta raðirnar fyrir komandi átök!
Á dagskrá fundarins:
• Kjör landsfundarfulltrúa!
• Samstarfssáttmáli VG og VTV verður borinn upp til samþykktar!
• Frambjóðendur munu standi fyrir miklu stuði!
Þegar búrókrasíunni sleppir tekur gleðin öll völd! Við stefnum á að eiga kút af bjór fyrir hópinn og það er Happy Hour hjá okkur til kl. 20:00. Þetta er lokaður viðburður fyrir félaga og vini, svo endilega bjóðið fólkinu ykkar sem vill kynnast starfinu, hitta frambjóðendur og taka þátt í stemningunni.
Mætum snemma, græjum málin og höfum gaman!
Prikið
Félagsfundur og fjör
19. febrúar
kl. 18:00