Stórt skref var stigið föstudaginn 16. febrúar þegar Guðmundur Ingi setti drög að frumvarpi sínu vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfisins í samráðsgátt stjórnvalda. Breytingarnar fela í sér nýja hugsun, breiðari nálgun, og mestu umbyltingu á örorkulífeyriskerfinu frá upphafi. Við umbyltinguna tökum við betur utan um fólk en áður og búum til hvata til að gera því kleift að blómstra.
Markmiðið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum, aukinni virkni og meira öryggi og vellíðan fólks.
Guðmundur Ingi vill heyra hljóðið í félögum með þetta verkefni og fá tækifæri til að kynna drögin og vinnuna. Því mun hann bjóða til fjarfundar miðvikudagskvöldið 21. febrúar klukkan 19.30-20.30.
Allir félagar mjög velkomnir!
Hlekkur á fundinn er hér.