Kæri félagi í VG Árnessýslu.
Félagsfundur VG í Árnessýslu verður haldinn miðvikudaginn 2. desember kl. 20:00
Fundurinn verður fjarfundur, haldinn í ZOOM forritinu.
Slóðin á fundinn er hér: https://zoom.us/j/94588968136?pwd=YWdvb3Arb3JKRWd6M0JuOTJnTHROUT09
Dagskrá fundar:
- Val á fulltrúum í kjördæmisráð.
- Önnur mál.
Nú er undirbúningur að hefjast fyrir alþingiskosningarnar sem verða haustið 2021. Eitt af fyrstu verkefnum sem er að ákveða hvaða aðferð verður notuð við að útbúa lista VG í Suðurkjördæmi og verður sú ákvörðun tekin af kjördæmisráði, uppstilling eða forval.
Okkur vantar fulltúa til að mæta á fund kjördæmisráðs til að taka þessa ákvörðun og er það verkefni þessa félagsfundar, að velja þá fulltrúa.
Við vonumst til að sjá sem flest á félagsfundinum 2. desember.
Almar Sigurðsson, formaður VG í Árnessýslu.