Kæru félagar
Boðað er til félagsfundar VG í Borgarbyggð mánudagskvöldið 19. ágúst kl. 20 í Landnámssetrinu.
Dagskrá
1. Kosnir fulltrúar á kjördæmisþing sem haldið verður í Varmahlíð 22. ágúst. Félagar hvattir til að gefa kost á sér og eiga þannig skemmtilegt síðdegi með Vinstri grænum.
2. Rætt um komandi fulltrúaráðsfund sem verður í Skaftafelli í lok ág. Stjórn langar til að senda þar inn eftirfarandi ályktun:
Stjórnarfundur VG í Borgarbyggð haldinn 9. ágúst 2019 telur afar mikilvægt að settar verði skorður þannig að bújarðir og aðrar landareignir safnist ekki á fárra hendur. Núverandi fyrirkomulag getur leitt af sér óeðlilega hátt jarðarverð og komið þannig í veg fyrir að fólk sem hyggur á að skapa sér lifibrauð og þar með fasta búsetu á jörðunum hafi ekki tök á því. Einnig er viss hætta á að almannaréttur til útivistar verði enn þrengri ef eignarhald á stórum landsvæðum verður á einni hendi. Við fögnum þeirri vinnu sem ríkisstjórnin hefur lagt í þetta flókna málefni og hvetur hana til að halda þeirri vinnu áfram af fullum þunga.
3. Vetrarstarfið.
4. Önnur mál.
Sjáumst vonandi sem flest.
Ingibjörg Daníelsdóttir