Search
Close this search box.

Félagsfundur VG í Borgarbyggð

Kæru félagar

Boðað er til félagsfundar VG í Borgarbyggð mánudagskvöldið 19. ágúst kl. 20 í Landnámssetrinu.

Dagskrá 

1.  Kosnir fulltrúar á kjördæmisþing sem haldið verður í Varmahlíð 22. ágúst. Félagar hvattir til að gefa kost á sér og eiga þannig skemmtilegt síðdegi með Vinstri grænum.


2. Rætt um komandi fulltrúaráðsfund sem verður í Skaftafelli í lok ág. Stjórn langar til að senda þar inn eftirfarandi ályktun:
Stjórnarfundur VG í Borgarbyggð haldinn 9. ágúst 2019 telur afar mikilvægt að settar verði skorður þannig að bújarðir og aðrar landareignir safnist ekki á fárra hendur. Núverandi fyrirkomulag getur leitt af sér óeðlilega hátt jarðarverð og komið þannig í veg fyrir að fólk sem hyggur á að skapa sér lifibrauð og þar með fasta búsetu á jörðunum hafi ekki tök á því. Einnig er viss hætta á að almannaréttur til útivistar verði enn þrengri ef eignarhald á stórum landsvæðum verður á einni hendi. Við fögnum þeirri vinnu sem ríkisstjórnin hefur lagt í þetta flókna málefni og hvetur hana til að halda þeirri vinnu áfram af fullum þunga.

Viðþurfum að skila ályktuninni inn fyrir fulltrúaráðsfundinn – ef þið hafið athugasemdir við ályktunina þurfa þær að koma á morgun – miðvikudag.
 

3. Vetrarstarfið.

4. Önnur mál.

Sjáumst vonandi sem flest.

Kærar kveðjur
Ingibjörg Daníelsdóttir

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search