Svæðisfélag VG í Mosfellsbæ boðar til rafræns félagsfundar fimmtudaginn 3. febrúar klukkan 20:00.
Á fundinum verður tillaga að kjörstjórn félagsins kynnt en hlutverk kjörstjórnar er að halda utan um framboð og lista félagsins fyrir sveitastjórnarkosningarnar í maí næstkomandi.
Bjarki Bjarnason rithöfundur og forseti bæjarstjórnar fer yfir bæjarmál og áherslur VG á kjörtímabilinu.
Gestur fundarins er:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.
Við stefnum hátt í næstu sveitastjórnarkosningum og því er kjörið tækifæri að mæta, taka þátt og hafa áhrif.
Hlekkur á fundinn er hér: https://us02web.zoom.us/j/85345289505?pwd=bnNkU25UcHQ0Lzlab1pRQjEvbkRCUT09
Meeting ID: 853 4528 9505
Passcode: 689588