Vinstri græn í Reykjavík boða til félagsfundar 17. janúar á Zoom klukkan 20:00.
Kosið verður um aðferð við val á framboðslista VG í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Að því loknu koma þingmenn Reykjavíkur ásamt ráðherrum VG og ræða um stjórnmálin í dag og helstu mál framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar og samvinnu þingmanna og sveitarstjórnarstigsins.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Hlekkur á fundinn: https://us02web.zoom.us/j/82021058430?pwd=cndXWUMvbmt6UzVreFZ2ZzVJYnFTQT09
Meeting ID: 820 2105 8430
Passcode: 512466