Flokksráðsfundur VG verður haldinn í Skaftafelli í Öræfum 30. ágúst til 31. ágúst. Fundurinn verður á Hótel Skaftafelli. Þar er líka hægt að gista og í boði svefnpokapláss í Vesturhúsi og tjaldstæði á flottasta svæði landsins. – Þetta verður eitthvað.
Flokksráðsfundur VG
Föstudagur 30. Ágúst
17.00 Setning og opnunarræða varaformanns VG Edwards Huijbens.
17.15 Ræða forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG.
18.00 Málefnahópar fram að landsfundi vinna.
19:15 Kynning á þingsályktunartillögu um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri og fulltrúi í starfshópi sveitarstjórnarráðuneytisins um framtíð sveitarstjórnarstigsins
19.30 Kvöldmatur.
20.30 Umræða um þingsályktunartillögu um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga.
21:00 Almennar stjórnmálaumræður.
Laugardagur 31. ágúst
08.30 Morgunhressing.
09.00 Málefnahópar kynna vinnu sína.
10.30 Þingmenn sitja fyrir svörum.
12.00 Hádegismatur.
13.00 Afdrif ályktana síðasta landsfundar, hvað hefur flokksráð gert.
Hringferð að Svartafossi og Sjónarnípu (2 klst létt ganga)
Fundarlok um 16.00.