Landsfundur VG. laugardaginn 28. ágúst, verður fjarfundur enn á ný vegna fjórðu bylgju covid. Landsfundurinn er kosningafundur, enda þá aðeins tæpur mánuður til Alþingiskosninga 25. september. Á fundinum verða kosningaáherslur kynntar, kosið verður í stjórn og flokksráð. Hægt er að bjóða sig fram í stjórn eða flokksráð með því að senda framboðstilkynningu á kjorstjorn@vg.is. Kosningarnar verða rafrænar, eins og VG fólk á að venjast frá því í forvali í vor. Landsfundargleði verður frestað enn á ný. Dagskrá stjórnarfundarins verður birt 20. ágúst, að loknum stjórnarfundi.
Dagskrá.
10:00-10:15 Framhalds landsfundur settur. Tillaga að dagskrá borin upp. Skýrsla stjórnar, kosning í fagráð.
10:15-10:45 Ræða formanns: Katrín Jakobsdóttir flytur opnunarræðu
10:45-10:55 Skemmtiatriði: Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs
11:00 Frestur til að skila inn framboði til stjórnar á kjorstjorn@vg.is
11:00-11:30 Kynning á stefnum og ályktunum
11:30-11:45 Afdrif kosningaáherslna
11:45-12:30 Hádegishlé
12:30-13:15 Kosning til stjórnar
Formaður kjörstjórnar kynnir fyrirkomulag, frambjóðendur kynna sig, svo hefjast kosningar og niðurstöður
eru tilkynntar jafnóðum)
13:00 Frestur til að skila athugasemdum um stefnur og ályktanir
13:15-14:45 Almennar stjórnmálaumræður.
14:00 Frestur til að skila inn framboði í flokksráð á kjorstjorn@vg.is
14:45-15:15 Kosning í flokksráð
Formaður kjörstjórnar kynnir fyrirkomulag og opnar kosningu sem stendur til 15:30
15:15-15:30 Stutt fundarhlé meðan fólk klárar að kjósa
15:30-16:00 Oddvitar kynna kosningaáherslur
16:00-16:45 Afgreiðsla ályktana og stefnumála
16:45-17:00 Fundarlok, tilkynnt um niðurstöður flokksráðskosninga og fundi slitið