Search
Close this search box.

Fundur EVG

14. febrúar
kl. 20:00

Á nýja árinu höldum við fyrsta fundinn þann 14. febrúar nk. kl. 20 í Stangarhyl 4, húsnæði FEB. Viðfangsefnin eru sagan og fólkið á ýmsum stöðum og tímum.

Til okkar kemur Jónína Óskarsdóttir bókavörður og menningarmiðlari sem hefur skrifað  viðtalsbók um líf tæplega 40 kvenna á Eyrarbakka fyrr og nú. Eftir kaffið fer Sverrir Jakobsson sagnfræðingur með okkur enn aftar í sögu heimsins og menningarinnar.

Fundarstjóri er Guðrún Hallgrímsdóttir. Mætum glöð og hress!

  1. Jónína Óskarsdóttir hefur saknað þess sárlega í sínum uppvexti hversu lítið hefur verið talað um almenna vinnu og líf kvenna og segir frá því hvernig vinnan við bókina gekk fyrir sig.
  2. Sverrir Jakobsson sagnfræðingur ræðir hugmyndir um Krist í gegnum tíðina og hvað felst í því að skoða hann sem sögulega persónu.
  3. eins og ævinlega – Páll Eyjólfsson og Sigurður Alfonsson leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna, Gunnar Guttormsson gefur tóninn.

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið – munið seðil í kaffisjóðinn!  –  Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.  Næsti fundur verður 13. mars 2024.

Hittumst heil.

Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar  en veit kannski ekki af þeim.

Undirbúningshópurinn:

Bryndís 861 9186; Svanhildur 863 2354; Þóra Elfa 824 6518, Þuríður Backman 8619031.

 __________________________

Almennt um fundina:

Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að  – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search