EN
PO
Search
Close this search box.
Stangarhylur

Fyrsti fundur vetrarins hjá EVG

9. október
kl. 20:00

Kæru félagar                             

Venjan er að á fyrsta haustfundinum flytji formaðurinn okkur ávarp en þegar þetta fundarboð er skrifað er landsfundurinn framundan og ekki vitað hver tekur við sætinu og er því nafnlaus gestur á þessu plaggi en mun ávarpa okkur í byrjun fundar! Mjög spennandi. Finnur Ricart Andrason forseti Ungra Umhverfissinna  segir álit sitt á umhverfismálum sem auðvitað eru mál málanna en hann hefur komið víða við í þeim efnum. Jón Viðar Sigurðsson jarðfræðingur  og leiðsögumaður segir okkur af Grænlandi og velur myndir úr stóru safni sínu en hann hefur starfað mjög víða þar í landi.

Fundarstjóri er Guðrún Hallgrímsdóttir. Mætum glöð og hress!

  1. Ávarp nýs formanns VG
  2. Eru umhverfismálin í góðu umhverfi?  Finnur Ricart Andrason umhverfisfræðingur  fer yfir nokkur atriði því umhverfismál eru auðvitað mál jafnt ungra sem aldraðra.
  3. Kaffi og spjall.
  4. Hvernig er Grænland á litinn? Jón Viðar Sigurðsson jarðfræðingur hefur starfað víða á Grænlandi með ýmsum hópum. Í spjalli sínu sýnir hann okkur einstakar myndir frá Grænlandii og náttúru þess?
  5. Og söngur eins og ævinlega – Páll Eyjólfsson og Sigurður Alfonsson leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna, Gunnar Guttormsson gefur tóninn.

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið – munið seðil í kaffisjóðinn!  –  Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.  Næsti fundur verður 13. nóvember 2024.

Hittumst heil.

Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar  en veit kannski ekki af þeim.

Undirbúningshópurinn:

Bryndís 861 9186; Svanhildur 863 2354; Þóra Elfa 824 6518, Þuríður Backman 861 9031.

 __________________________

Almennt um fundina:

Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að  – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search