Kæru félagar
Jólafundurinn verður haldinn 7. des. kl. 20 nk. í Stangarhyl 4, húsnæði FEB.
Að þessu sinni er fundurinn fyrsta miðvikudag mánaðarins og okkar góðu gestir verða tveir.
Vestmannaeyingurinn Jóhanna Njálsdóttir gefur okkur innsýn í líf eyjaskeggja, bæði fyrr og nú og segir einnig af jólasiðum þeirra. Þá kemur læknirinn sögufróði Óttar Guðmundsson og dregur upp fyrir okkur mynd af enn eldra mannlífi. Auðvitað er söngur, kaffi og spjall að venju. Fundarstjóri er Guðrún Hallgrímsdóttir.
Mætum glöð og hress!
- Ég finn lyktina af jólunum, finnur þú hana?– Jóhanna Njálsdóttir húsfrú í Vestmannaeyjum segir frá.
- Kaffi og spjalltími.
- Örlögin spinnast um hátíðir – Óttar Guðmundsson læknir kafar í fortíðina.
- Og söngur – eins og ævinlega – Páll Einarsson og Sigurður Alfonsson leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna, Gunnar Guttormsson gefur tóninn.
Kaffihlé og kleinur um 9-leytið – munið seðil í kaffisjóðinn! – Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir. Næsti fundur verður 8. febr. 2023.
Hittumst heil.
Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar en veit kannski ekki af þeim.
Undirbúningshópurinn:
Bryndís 861 9186; Svanhildur 863 2354; Þóra Elfa 824 6518, Þuríður Backman 8619031.
__________________________
Almennt um fundina:
Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.