VG á ferð.
Þingflokkur VG verður á ferð um allt land í kjördæmavikunni sem hefst 10. febrúar næstkomandi og stendur alla vikuna. Í för með þingmönnunum slást varaþingmenn, sveitarstjórnarfólk, formenn svæðisfélaga, starfsmenn, VG-stjórnir og félagar. Heimsóttir verða vinnustaðir, fundað víða og ýmislegt brallað.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við VG vilji þeir slást í hópinn eða leggja til mála. Nokkrir fundir hafa þegar verið auglýstir og má finna þá hér en fylgist spennt með því nú detta þeir inn hver á fætur öðrum.
Sjáumst hress í kjördæmavikunni.
Opnir fundir:
Kaffi Galdur á Hólmavík, mánudaginn 10.febrúar kl. 17.00 – 18.30
Opinn fundur með Katrínu Jakobsdóttur og Lilju Rafneyju Magnúsdóttur. Ræðum stjórnmálin í byrjun árs og það sem á fundargestum brennur. Öll velkomin.
_
Nýheimar á Höfn í Hornafirði, þriðjudaginn 11. febrúar kl. 08.30.
Morgunverðarfundur með Guðmundi Inga Guðbrandssyni, Svandísi Svavarsdóttur, Ara Trausta Guðmundssyni, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Steinunni Þóru Árnadóttur. Ræðum stjórnmálin í byrjun árs og það sem á fundargestum brennur. Öll velkomin.
_
Langabúð á Djúpavogi, þriðjudaginn 11 febrúar kl. 12 – 13
Súpufundur í Löngubúð á Djúpavogi með Guðmundi Inga Guðbrandssyni, Svandísi Svavarsdóttur, Ara Trausta Guðmundssyni, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Steinunni Þóru Árnadóttur. Bjóðum upp á rjúkandi súpu og gott spjall í hádeginu. Öll velkomin.
_
Gistiheimilið Egilsstöðum, þriðjudaginn 11 febrúar kl. 20 – 21.30
Fundur með Guðmundi Inga Guðbrandssyni, Svandísi Svavarsdóttur, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Steinunni Þóru Árnadóttur. Ræðum stjórnmálin í byrjun árs og það sem á fundargestum brennur. Öll velkomin.
_
Eyvindarstofu á Blönduósi, þriðjudaginn 11 febrúar kl. 20 – 21.30
Fundur með Katrínu Jakobsdóttur, Lilju Rafney Magnúsdóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur, Kolbeini Óttarssyni Proppé og Ólafi Þór Gunnarssyni. Ræðum stjórnmálin í byrjun árs og það sem á fundargestum brennur. Öll velkomin.
_
Salur Framsýnar, Húsavík, miðvikudaginn 12 febrúar kl. 20-21.30
Fundur með Guðmundi Inga Guðbrandssyni, Svandísi Svavarsdóttur, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Steinunni Þóru Árnadóttur. Ræðum stjórnmálin í byrjun árs og það sem á fundargestum brennur. Öll velkomin.
_
Hótel Siglunes, miðvikudaginn 12 febrúar kl. 20-21.30
Opinn fundur með Katrínu Jakobsdóttur, Lilju Rafney Magnúsdóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur, Kolbeini Óttarssyni Proppé og Ólafi Þór Gunnarssyni. Okkur langar að ræða stjórnmálin í byrjun árs og allt það sem á fundargestum brennur!
_
Hótel KEA, fimmtudaginn 13 feb kl 20-22.00
Fundur með Guðmundi Inga Guðbrandssyni, Svandísi Svavarsdóttur, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Steinunni Þóru Árnadóttur, Lilju Rafney Magnúsdóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur, Kolbeini Óttarssyni Proppé og Ólafi Þór Gunnarssyni. Ræðum stjórnmálin í byrjun árs og það sem á fundargestum brennur. Öll velkomin.